Formaður Félags blikksmiðjueigenda, Stefán Lúðvíksson, ásamt viðskiptastjóra félagsins hjá Samtökum iðnaðarins, Þorgils Helgasyni, sóttu norrænan fund Nordisk blikkenslagermesterforbund í Danmörku 12. september síðastliðinn.
Umræðuefni fundarins voru umhverfi og helstu áskoranir greinarinnar þar sem mannauðsmál og menntun bar helst á góma. Fundurinn var haldinn á Clarion hóteli á Kaupmannahöfn. Niclas Olsson tók við sem nýr forseti samtakanna af Jan Henrik Nygård.
Stjórn Félags blikksmiðjueigenda mun vinna að því í sameiningu að auka veg og vanda iðnaðarins með markvissri markaðssetningu.
Stefán Lúðvíksson, formaður Félags blikksmiðjueigenda, er annar frá hægri og Þorgils Helgason, viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI, er lengst til hægri.
Niclas Olsson, t.h., tók við sem nýr forseti samtakanna af Jan Henrik Nygård.



Sævar Jónsson, eigandi Blikksmiðju Guðmundar, bauð gesti velkomna. 



Jón Arnar Haraldsson og Þorgils Helgason.
